Þróunarverkefni
Verkefni: Blikastaðir
Staðsetning: Mosfellsbær
Lýsing: Um er að ræða rúmlega 95 ha svæði á Blikastöðum í Mosfellsbæ þar sem gert er ráð fyrir íbúða byggð samkvæmt aðalskipulagi.
Verkefni: Arnarnesland
Staðsetning: Garðabær
Lýsing: Um er að ræða norðurhluta Akralands í Garðabæ sem er um 9 ha svæði þar sem gert er ráð fyrir verslun og þjónustu ásamt biðstöð Borgarlínu samkvæmt aðalskipulagi. Svæðið hefur fengið nafnið Arnarland þar sem ráðgert er að muni rísa heilsubyggð með áherslu á lífsgæði, náttúru og heilsueflandi þjónustu. Verkefnið er í 51% eigu Landeyjar.